Rausið hennar Unnar

þetta er allt hagræddur sannleikur í mína þágu...

01.12.2007 22:08:17 / unnurskvis

Jólin fara að koma :)

Ég veit það er bara 1.des en þar sem mér leiðist í vinnunni og hafði ekkert að gera ákvað ég að stríða fólkinu mínu smá með að setja upp svona jólaþema á síðuna mína, er þetta ekki bara hið fínasta jólaþema. En það verður nú bara að segja eins og er að ef ég á að komast í jólaskap að þá verð ég að fara að fá snjó...hvað er málið people!!! Það er ekkert jólalegra en að fara að labba upp í Heiðmörk með risastór snjókorn fallandi á auglokin svo maður þarf að blikka þau af, í svona tveggja stiga frosti og sól svo að birtan skín á snjóinn og endurkastast. Öll trén eru fannhvít og hann Tinni minn er mjög auðfundinn...það er nottlega rosalega góður plús þar sem hann á það til að leika sér inni í skógi eða uppi á hólum og hæðum...koma svo heim kaldur og blautur og leggjast upp í sófa með teppi, piparkökur og jólaöl í dós frá Egils...ahhh manni hitnar bara um hjartarætur við tilhugsunina...en já bara að hjálpa ykkur smá að komast í jólaskap þar sem að bara tilhugsunin um Heiðmörk svona lætur mig langa að hafa snjó allan ársins hring. SVO meiri snjó - meiri snjó - meiri snjó......

Jæja best að halda áfram að vinna, hafið ánægjulegan desember mánuð :)


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.10.2007 20:28:21 / unnurskvis

Veit ekki afhverju þetta kom svona asnalega by the way...

afsakið innilega hvernig þetta lítur en ég kann ekki að laga þetta :)

» 1 hafa sagt sína skoðun

29.10.2007 19:59:18 / unnurskvis

Ferðin okkar til Budapest

 

 

 

Jæja ég er búin að ætla að gera þetta lengi og núna er komið að því...hérna er ferðasaga okkar Einars

 Föstudagurinn 19.október:

Fórum upp á flugvöll og vorum korteri of sein by the way svo við enduðum á því að sitja sitthvorumegin við ganginn hjá sithvorum hjónunum sem við þekktum ekki neitt í fjóra klukkutíma. Í Budapest er tveggja tíma mismunum (þar sem þeir eru tvem tímum á undan) svo við lentum á miðnætti á þeirra tíma. Þá tók við mjög löng rútuferð á öll hótelin og við vorum á næst seinasta hótelinu af átta, eins típiskt og það var. Jæja við vorum komin á hótelið okkar um tvö um nóttina og fórum þá strax á sofa.

 Laugardagurinn 20.október:

Við vöknuðum sex á íslenskum tima, semsagt átta á þeirra, og fórum í kynnisferð um Budapest. Hér má sjá mynd af umhverfinu í kringum hótelið okkar:

 Hótel Erzebeth

 og er þetta lítið og sætt hótel rétt hjá aðal verslunargötunni og í svona 10 mínútna taxa ferð frá West End sem er stæðsta moll evrópu

Við byrjuðum á því að keyra um Budapest og má hér sjá stæðsta bænahús Gyðinga í Evrópu þrátt fyrir það að þeir séu mjög fáir í Budapest:

 

 Næst á eftir fórum við á Hetjutorgið en þar má sjá alla konunga sem hafa verið mikils metnir af Ungverjum: 

 Þetta er einnig stytta af hetjutorginu í nærmynd:

 Og hérna er svo ég þar sem Einar er búinn að taka mynd af mér hjá öllum hestunum:

Þar á eftir fórum við svo í kastalahverfið þar sem Einar hélt á 8 KG örn og ég tók það upp á Video eins og allt sem við sáum þar. Þar á eftir fórum við svo að sjá Þinghúsið en það er víst með rúmlega 600 herbergi. Í upphafi gleymdist víst að gera baðherbergi þrátt fyrir 600 herbergja byggingu og var því því reddað með því að gera eitt af hinum herbergjunum að baðherbergi, það eina var það að lfothæðin er víst fleiri fleiri metrar og er víst ógaman að fara á salernið þar sem það bergmálar um allt hvað er að ske þar inni.... en hérna eru myndir af ráðhúsinu og ég verð að segja að þetta er með flottari byggingum Budapest:

Þessi er tekið frá kastalahæðinni:

 

 ásamt þessari:

 

 

 

 

 Svo fórum við upp á Gellert hæð en þar er semsagt styttan sem sést alltaf í Eurovision. Einnig sáum við þar virki sem hefur gegn ýmsum hlutverkum og hann Einar minn bara þurfti að taka mynd af mér þarna:

 

Við keyrðum fram hjá helstu söfnunum og baðhúsum sem við fórum reyndar ekki í eins og við ætluðum að gera en það var vegna þess að þau eru kynjaskipt. Um kvöldið fórum við svo út að borða á bát sem var á siglingu niður Dóna og tókum við mest allt af þeirri ferð upp á video en þetta var mjög gaman. Hérna eru smá myndir úr siglingunni:

 

Og hérna er einn af fiðluleikurunum en það var fiðlu tónlist um borð ásamt söngkonu sem ég mun ekkert segja til um hæfileikana hjá:

 Um kvöldið fórum við svo út á bar og ætluðum að fara á djassklúbb sem var því miður lokaður fyrir einkapartý. Við drukkum svoldið mikið og enduðum rallhálf uppi á hóteli um 2 um nóttina. Daginn eftir vaknaði maður smá þunnur og fór þá í dýragarð þar sem við tókum helling af myndum en ég mun bara setja inn myndina af geitinni sem Einar slóst við...já, geitinni en hún ætlaði að éta bæklinginn hans Einars en hann hélt nú ekki og fór að reyna að rífa hann útúr aumingja geitinni sem barðst vel fyrir sínu:

Eftir þetta fórum við í West End mollið og verlsuðum helling á jólagjöfum og föt á Einar og tókum taxa heim með mafíunni án þess að vita af því fyrr en eftir á og borguðum alveg morðfjár fyrir rúntinn. Um kvöldið fórum við svo út að borða á flottum veitingastað sem var beint á móti hótelinu okkar þar sem var lfandi tónlist með gítarleikara og fiðluleikara. Þar borðuðum við þriggja rétta máltíð með helling af víni og borguðum fimm þúsund íslenskar fyrir allt saman - ekki neitt. Daginn eftir sváfum við alveg til 9 og fórum svo og fengum okkur bjór og mat á göngugötunni og röltum svo í tvær búðir á meðan við biðum eftir rútunni en við fórum aftur úr landi klukkan hálf fjögur. Klukkan tæplega átta á okkar tíma lentum við drulluþreytt og uppgefin.

Þarna úti er geðveikt ódýrt, sjúklega flott hús og mjög gaman að vera. Þarna drekkur maður sko slatta af bjór og vorum við Einar sko í þeim hóp.

Þarna munum við fara alveg pottþétt aftur!!!!

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.06.2007 20:45:27 / unnurskvis

vinna...vinna

Sæl öll....

þá er ég byrjuð að vinna og veit ekkert hvað ég á að gera af mér eftir vinnu...mín farin að þrífa látlaust alla daga og lesa svo það sem eftir er dagsins.

Nýja vinnan mín er semsagt þjónustufulltrúi í söluveri Símans og er það mjög krefjandi starf... ég var einmitt að pæla hvort ekki væri hægt að taka BS gráðu í þessu starfi miðað við hversu margt maður þarf að læra en það er greinilega ekki möguleiki og þarf maður því að gera sitt besta og reyna að klúðra sem minnstu. Í augnablikinu er þetta samt fínt þar sem ég er bara á námskeiðum á fullum launum ásamt því að hlusta aðra svara í símann..ansi gott. Ég fékk meira að segja pakka fyrir það að vera nýr starfsmaður og var það þetta lúxus flísteppi frá 66° N og hefur það komið sér vel á kvöldin þegar legið er uppi í rúmi með heitt te og góða bók... seinustu daga hefur mér engu að síður liðið eins og fávita og ekki haft hugmynd um hvað ég er að gera en eftir því sem mér skilst er þetta fullkomlega eðlileg tilfinning og verður það víst í einhvern tíma enn. Ég fékk semsagt að svara í dag með annan eldri starfsmann við hlið mér en þá var hold takkinn alveg ofboðslega vinsælt tæki... þetta er algjör snilld.

allavega þá ætla ég að fara að taka úr þvottavél og fara svo upp í rúm að lesa svo hafið ánægjulega helgi...

bless elskurnar :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.05.2007 21:38:38 / unnurskvis

Hellú, hellú

Sorrý allir hvað er langt síðan ég bloggaði en jæja, núna er ég í prófum og ætti ekki að vera að blogga en þar sem ég er orðin frekar þreytt þá ákvað ég að blogga smá.... þar sem heilinn minn er steiktur af allri þessari vitneskju sem inn hefur borist undanfarnar vikur þá veit ég í raun ekki hvað ég er að segja eða gera svo ég segi bara... hafið gaman af lífinu því ég mun sko gera það eftir miðvikudag (seinasta prófið mitt er þá)...

nú er ég farin að lesa stjórnmálafræði, wish me luck cause I´m shure as hell gona need it...


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.03.2007 19:02:20 / unnurskvis

Könnun...

Þar sem Tinni sigraði síðustu könnun með yfirburðum þá ákvað ég að skella inn nýrri könnun þar sem framtíð mín er í ykkar höndum....Muhaha

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.03.2007 18:56:38 / unnurskvis

skóli...skóli...skóli...

Hálft lokapróf búið :)

Ég veit þetta hljómar undarlega en alveg satt, það var í sögu úr Kína en eins og allir vita sem þekkja mig að þá er saga ekki mín sterkasta hlið og það mætti segja að það sé vægt til orða tekið. En allavega þá er það búið...þrátt fyrir mikla erfiðleika....en eins og fæstir vita að þá er Kína með 49 keisaraveldi, reyndar eru sum þeirra tímabil innan sama veldisins eins og northern Zhou og vestern Zhou,borið fram Sjú, og eru það öll svona...mjög áhugavert. Þrátt fyrir allt þetta þá gekk mér bara ágætlega og eftir stendur Víetnam en það er semsagt það sem ég er að fara í núna... :) JIBBÝ...

Jæja þá er bara að halda áfram að gera ekki neitt...mér líður eins og skólinn sé búinn þar sem ég er búin í einu lokaprófi. En lífið er ekki alveg svo gott þó maður vildi...allavega er farin að gera ekki neitt....

Bless og eigið góðar stundir....


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.03.2007 12:50:12 / unnurskvis

Útskrift...bæði mín og annarra....

Eins og sennilega flestir vita þá er ég að fara að útskrifast en hef sennilega gert það versta sem hægt er að gera í þeim efnum. Málið er það að ég hef valið mér útskriftarföt án þess að vita til þess að þau séu til..... Þetta er nottlega alveg eftir mér og er snilldin ein.... Ætli ég endi ekki á því að þurfa að finna mér einhverja stofu sem sérsaumar föt og þurfa að borga alveg morðfjár fyrir....hver veit....

allavega, þá mun hún Guðný elska fara að finna með mér útskriftarföt og endar ábyggilega á því að fara grátandi heim af þreytu og pirring við að reyna að finna föt sem eru ekki einu sinni til nema í höfðinu á mér....þetta verður bæði sniðugt og fróðlegt að sjá...ef þú sérð þetta blogg Guðný, þá gangi þér vel :)

En jæja, engu að síður stendur frammi fyrir mér erfiður dagur við að reyna að finna útskriftargjöf handa konu bróður hans Einars. Þar sem karlmenn eru og verða alltaf karlmenn þá fór þetta sjálfkrafa í minn verkahring, það er eins og karlmenn haldi að allar konur þekki konur og viti hvað þær vilja...þetta verður erfitt þar sem ég þekki hana ekki það vel svo ég verð bara að treysta á mitt kvenlega innsægi, sem er eki beint gott þessa dagana en fer vonandi batnandi. En jæja góðir hálsar nú ætla ég að fara að googla einhverju um útskriftargjafir og sjá hvort ég detti ekki niður á eitthvað sniðugt....

Hvar væri ég án google???


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.02.2007 20:36:34 / unnurskvis

Konudagurinn...

Eins og ábyggilega margir vita þá var konudagurinn í dag. Einar klikkaði nottlega ekki, frekar en venjulega, þar sem mér leið eins og ég ætti stórafmæli. Ég fékk belgískt konfekt...alveg geggjað, sem þíðir nottlega að annar nammidagur bættist í hópinn :S en það er OK. Ég fékk líka svona snyrtisett með rósailm. í því var ilmvatn, geðveik lykt... olía fyrir líkamann, varasalvi og svo alveg ótrúlega flott kerti.... geðveikt sætt :D Svo til að toppa allt að þá gaf hann mér diktaphone, sem er nottlega bara klikkun en svona er hann...gerir ekki annað en að dekra við mig...þessi elska... en nú ætla ég að halda áfram að læra og horfa á CSI, gaman að vera svona fjölhæfur ;) en allavega þá vona ég að dagurinn ykkar hafi verið ánægjulegur eins og minn

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.02.2007 01:37:29 / unnurskvis

Helgin....

Sukk helgi dauðans

Endaði í tveim nammidögum....frábært. Var á vinnuþorrablóti hjá Einari þar sem ég borðaði allt sem mér datt í hug...fyrir utan súrmat. Þó maður sé búinn að vera svangur í viku þá er kannski óþarfi að ganga svo langt að éta slíkan mat... nei segi svona...fínt fyrir fólk sem kís þetta svo lengi sem það sé ekki að troða því uppá mann :) allavega....í kvöld þá var pizza og bjór hjá Hafdísi systir, var reyndar að keyra, en þá át ég eins og viitleysingur af alls kyns kræsingum og góðgæti sem maður endaði á að hlaða í sig eins og maður hafi ekki étið frá því um jólin...svo núna er maður heima með tilheyrandi verki í maga og sál eftir slíka hegðun en maður stendur sig bara betur í vikunni. En jæja nú er rúmið farið að lýta ansi vel út svo ég held ég fari bara að halda í það....var samt að sjá að maður má blogga um fréttir inn á visir.is það getur verið svolítið gaman. Maður þarf bara að passa sig þar sem þetta er eitthvað sem allir geta séð...og eins og allir vita sem þekkja mig að þá er það ekki mín sterkasta hlið þegar kemur að sumum málefnum.

En jæja þá er það bara góði svefninn

Góða nótt elskurnar


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.02.2007 22:35:03 / unnurskvis

mætt í Bloggheiminn.. hann verður aldrei samur!

Halló- ég er mætt! :haha:

hverjum hefði dottið það í hug!

síjú!


» 2 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
RSS tengill
I arrived...
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 734555 dögum